Í slenskt skyr, skosk lifrarkæfa, grískur ostur. Alls staðar á plánetunni eiga heimamenn sína sérstöku rétti sem hvergi finnast annars staðar. Rétti sem þú sem gáfaður, erlendur ferðamaður, verður að prófa. En hvað áttu að prófa í Austurríki?

Önd að austurrískum hætti. Ekki klikka á að prófa þennan á ferð um landið.
Við skulum vera heiðarleg með það að þó Austurríkismenn státi af merkri sögu og eigi einhverjar fegurstu byggingar undir sólinni fer alls engum sögum af matargerðarlist hjá þessu fyrrum stórveldi. Eiga þeir ekkert einstakt að bera fram á borð fyrir gesti?
Í ljós kemur beri fólk fram þessa spurningu á góðum og gömlum veitingahúsum í landinu að þeir eiga vissulega sína spes rétti sem þú færð varla annars staðar. Gallinn sá að almennt er litið niður á þessa þjóðarrétti, ekki ósvipað og með skyrið okkar áður en í ljós kom að erlendum hollustugúrúum þótti mikið til koma. Þeir finnast því yfirleitt ekki á neinum matseðlum neins staðar.
En biddu fallega og fyrr en varir mætir þjónn með allsérstakar veigar 🙂
♥ Kartöflugúllas (Erdäpfelgulasch) – Gúllas er alla jafna tengt Ungverjalandi en þá vill oft gleymast að Ungverjaland var fyrir ekki svo löngu síðan hluti af Austurríki. Til eru þeir sem segja gúllas af öllu tagi austurrískt en ekki ungverskt. Í öllu falli finnur enginn kartöflugúllas í Ungverjalandi. Kartöflur hægeldaðar í potti, paprika með og svo súr rjómi til að toppa dæmið. Merkilega gott og fyllir malla á augabragði.
♥ Eggjanúðlur (Käsespätzle) – Hljómar hvorki megaspennandi né einstakt enda fást eggjanúðlur um veröld alla næstum. Þessar þó pínu spes. Deigið alltaf hnoðað í höndum og ávallt emmenthal eða gruyere ostur úr héraði brúkaður við matargerðina. Klabbið toppað upp með snöggsteiktum lauk. Aldeilis himneskt eftir fjallatúr.
♥ Eldsteikt önd (Martinigansl) – Fyrir ekki margt löngu fékkst þessi réttur alls ekki utan tiltekins tíma í október og nóvember. Nú á dögum er þó hægt að fá réttinn á betri veitingastöðum landsins utan þess tíma. Hér auðvitað um önd að ræða sem hægelduð er yfir opnum eldi, maginn fylltur af heslihnetum og plómum á köflum og alltaf, alltaf rauðkál og létt rjómalegnar kartöflukúlur sem meðlæti. Alvarlegt hnossgæti.
Njóttu vel 🙂




