H eimsókn til fjarlægra landa í Asíu á döfinni á eigin vegum? Látið þá alveg vera að bóka skoðunarferðir eða skutl með fyrirvara. Slíkt er nánast undantekningarlaust ódýrara á staðnum.

Einu gildir hvers lags túr þig vantar í fátækari löndum Asíu. Það er nánast gefið að þú sparar með því að bóka EKKI FYRIRFRAM.

Ekki í fyrsta sinn sem við minnumst á þetta en þið vitið hvað þeir segja um góða sögu…

Margt vestrænt fólk er góðu vant á ferðalögum um eigin heimahaga, í Evrópu og Norður Ameríku.

Hundruð ferðaþjónustufyrirtækja sem bjóða alls kyns díla og góð kjör á skoðunarferðum og skutli og yfirleitt allt kristaltært á flottum heimasíðum. Þú veist að hverju þú gengur og kostnaðurinn liggur ljós fyrir vikum eða mánuðum áður en ferð hefst. Steingelt auðvitað en skiljanlegt fyrir þá sem vilja vera inni í þægindarammanum öllum stundum.

Það getur vissulega verið plús enda fæst okkar með svo troðnar buddur að upp úr flæðir af peningum sem við notum ekki neitt. En þetta er slæm hugmynd peningalega ef förinni er heitið til fátækari landa Asíu.

Ástæðan er sú að samkvæmt reynslu okkar hér á ritstjórn og samkvæmt samtölum við aðra vestræna vegfarendur um áraraðir, virðist það nánast regla frekar en undantekning að túrar og ferðir sem eru í boði fyrirfram á netinu eru töluvert dýrari en sömu túrar og ferðir sem þér býðst persónulega á flestum stöðum í þessum sömu löndum.

Hér erum við að tala um lönd á borð við Indónesíu, Víetnam, Kambódíu, Búrma, Indland, Srí Lanka, Taíland, Filippseyjar og Kína í tilfellum. Lönd þar sem alvarleg fátækt er næsta almennt ástand.

Nokkur dæmi af okkar eigin skinni svona til að setja hlutina í samhengi:

♦ Leigubíll frá Bangkok til Hua Hin í Taílandi og aftur til baka viku síðar. Slíkur túr bókaður með mánaðar fyrirvara á netinu kostaði rúmlega átta þúsund krónur fyrir fjóra saman. Fáranlega fínt verð fyrir leigubíl yfir 400 kílómetra leið. Alveg þangað til ferðaþjónustuaðili í næstu götu við hótelið í Bangkok bauð sama túr fyrir 4.500 krónur fyrir hópinn.

♦ Tveggja daga sigling plús nótt um borð í flottu fleyi á hinum kostlega Halong flóa í Víetnam. Bókað fyrir tvo með sextíu daga fyrirvara og kostnaðurinn rösklega 33 þúsund krónur. Brilljant verð á flottri siglingu um flottan stað. Í það minnsta þangað til við komum til strandbæjarins Dinh Vu. Þar voru nokkrir aðilar að bjóða sömu siglingu með sömu skútu fyrir tvo saman niður í 22 þúsund krónur.

♦ Fjögurra daga skoðunartúr með þremur nóttum á þriggja stjörnu hótelum um norðurhluta Filippseyja á annatíma fékkst á netinu með góðum fyrirvara fyrir 76 þúsund krónur per mann. Alls ekki slæmur díll hjá virðilegu ferðaþjónustufyrirtæki. En alas, minnst þrír aðilar í höfuðborginni Manila buðu sams konar túr niður í 40 þúsund krónur á mann.

♦ Vikuleiga á 250 kúbika mótorhjóli í Negombo á Srí Lanka kostaði manninn 4.900 krónur per dag með fyrirfram bókun með mánaðar fyrirvara. Á staðnum kom í ljós að sama hjólaleiga var með viku-sértilboð upp á 2.700 per dag.

Ástæða þess að þú finnur líklega aldrei bestu kjörin á ferðum hingað og þangað í ofangreindum löndum Asíu á netinu er einfaldlega sú að fjölmargir aðilar sem bjóða túra hingað og þangað hafa engin efni á að halda úti flottum vefsíðum og kynna sig þar. Ekki síður sú staðreynd að íbúar í þessum löndum, sem eru jú sjálfir ótrúlega mikið á faraldsfæti, nota ekki netið til að leita uppi ferðaþjónustuaðila til að komast frá a til ö. Þeir labba út á næstu ferðaskrifstofu og þær finnast nánast í öllum bæjum og sannarlega í borgum.

Auðvitað er öryggið ekki alveg það sama. Valitor er ekki mikið að tryggja endurgreiðslu á skoðunarferð þegar þú greiðir fyrir ferð með seðlum í hrörlegum timburhjalla í Kambódíu. Og þú finnur engar umsagnir á Tripadvisor um ferðaskrifstofuna Boomsang í borginni Ho Chi Minh í Víetnam. Ástæðan sú að þrátt fyrir fjögur útibú í borginni sjálfri heldur ferðaskrifstofan ekki úti neinum vef.

Það má því kannski segja að ef fólk þorir aðeins út úr þægindarammanum, og ef þú ert að þvælast um Asíu á eigin vegum eru sterkar líkur á því, er hægt að spara dágóðan skilding á að bóka engar ferðir fyrr en á staðnum sjálfum. Jafnvel ef svo illa vill til að þú finnur enga ferðaskrifstofu á tilteknum stað ertu væntanlega á hóteli með netaðgangi svo það er lítið mál að græja ferð gegnum netið ef allt annað þrýtur 🙂