Ferðaskrifstofan Plúsferðir bjóða nú í einn sólarhring svokallaðan sólarsprett til Orlando í Bandaríkjunum og Tenerife á Spáni. Er um útvaldar ferðir að ræða í september og október en þessar ferðir eru aðeins í sölu á þessu verði í sólarhring.
Sé málið skoðað kemur í ljós að aðeins er um þrjár ferðir að ræða og eru þær allar farnar í þessari viku. Þann 29. september er í boði vika á Tenerife með hálfu fæði á 84.900 krónur. Er þar miðað við tvo fullorðna svo vikan kostar tvímenninganna 169.800 krónur eða 24.200 á dag. Um er að ræða þriggja stjörnu hótelið Parque Santiago eða fyrir 5000 krónur í viðbót á mann þriggja stjörnu hótelið Hotel Tropical Playa.
Þann 2. október er í boði átta nátta ferð til Orlando á Flórída. Er þar dvalið á Baymont Inn & Suites sem aðeins er tveggja stjörnu gistiheimili. Prísinn á mann 89.900 og verð miðast við tvo fullorðna.
Heimasíða Plúsferða hér.






