H ong Kong lengi verið dýr á pyngju. Meðalkostnaður per nótt á hótelum borgarinnar oftast skjagað í 30 þúsund kallinn sem er fokdýrt fyrir þau okkar sem ekki tilheyra Engeyjarættinni, erum á ríkisspenanum eða höfum komið fjármunum undan í skattaskjól eins og Sigmundur Davíð og Júlíus Vífill.

Strætisvagnar í Hong Kong eru ekkert slor eins og heima á Fróni.
Sömuleiðis er ár og dagur síðan það var billegt að þvælast um borgina og skoða það sem merkilegast er. Það er að segja ef þú kaupir þessa túra sem í boði eru á ferðamannastöðum.
Ekki heldur amalegir túrarnir við fyrstu sýn. Tveggja til þriggja stunda rúntur um merkustu áfangastaði borgarinnar í litlum hóp í loftkældum sendibíl með eldhressum innfæddum dræver. Algengur kostnaður átta til fimmtán þúsund kall á kjaft.
Sem er hrein firra. Sérstaklega þegar haft er hugfast að lungann af þessum sömu „frægu” stöðum er hægt að sjá og/eða heimsækja billega með tveimur tiltekum strætisvögnum alla daga allan ársins hring. Loftkældum tveggja og jafnvel ÞRIGGJA hæða vögnum. Hér erum við að tala um VENJULEGA strætisvagna en ekki einhverjar spes ferðir.
Trixið er að vita hvaða vagn á að taka 🙂

Útsýnið verður ekkert betra en þetta 🙂
Strætisvagn númer 2:
Ein elsta strætisvagnaleið í borginni tekur þig um hinn fræga Nathan Road þar sem ekki er þverfótað fyrir fólki 365 daga ársins. Þau leiðindi má fyrirbyggja með setu í vagni númer 2. Sá fer hægt en örugglega um helstu göngugötur borgarinnar og minnsta mál að stökkva af eða á þegar sá gállinn er á.
Strætisvagn númer 15:
Gúggli fólk myndir af eða frá Hong Kong fást iðulega upp yfirlitsmyndir af toppi Viktoríutinds (sjá mynd.) Toppstopp ef þú vilt sjálfsmynd með HK í bakgrunni eða bara fá yfirlit yfir þessa frægu borg. Leiðin upp á toppinn er ekkert mikið síðri en toppurinn sjálfur og strætisvagn númer 15 rúllar þá leiðina dag hvern sex sinnum á klukkustund.
Með því að rúlla með strætó í stað ferðaþjónustuaðila þessar tvær vinsælu leiðir spararðu gróflega 20 til 30 þúsund krónur per kjaft. Munar um minna nema þú sér Bjarni Benediktsson eða ættingjar hans og greiðir bara klink í skatta.
Túr með strætisvögnum HK kostar manninn frá 140 krónum upp í 1.400 ef um næturvagn er að ræða. Kostnaður fer eftir lengd ferðar hverju sinni. Fólk þarf að hafa nákvæma skiptimynt eða kaupa svokallað Octobus-kort sem dekkar dag, viku eða mánuð í senn. Fargjaldið er 15% lægra en ella með Octobus-korti.
Vel yfir þrjú hundruð strætisvagnar ganga í Hong Kong og nágrenni alla daga ársins og allan sólarhringinn. Þú þarft því tæknilega aldrei að taka dýran leigara á þessum slóðum 🙂




