V íðast hvar í Alicante og nágrenni má fá alveg hreint ágætan mat og oftast betri mat en fæst og finnst á stöðum sem eru gegnsósa af fjöldatúrisma eins og raunin er um þessa ágætu spænsku borg. En það er auðvitað munur á ágætum mat og stórkostlegum…

Það verður að segjast eins og er að það eru mun færri lélegir veitingastaðir í Alicante en til dæmis í Malaga eða Benídorm. Færri svona viðbjóðsstaðir við ströndina þar sem matseðilinn er með mynd af réttum í boði, svona fyrir hálfvitana, og meiri feiti og fingraför á matseðlinum sjálfum en á kjúklingaréttinum sem þú pantar.

Hér eru sex staðir sem hafa aftur og ítrekað komið okkur á óvart í Alicante. Maturinn alltaf fyrsta flokks, þjónusta á pari við það besta og stemmarinn innandyra ekkert að skemma nokkurn hlut. Bon appetít 🙂