Tíðindi

Sex flugmenn með fölsuð skírteini

  30/03/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Indverska lögreglan hefur handtekið sex einstaklinga sem grunur leikur á að hafa flogið farþegaþotum án menntunar eða leyfis til slíks. Hafa þarlend yfirvöld ennfremur handtekið yfirmann flugleyfisveitinga í Nýju Delhí fyrir að falsa slík skírteini. Um er að ræða flugmenn hjá virtum indverskum flugfélögum á borð við Air India.

Komst upp um kauða þegar flugmaður einn sem yfirheyrður var vegna miður góðra lendinga fyrir skömmu viðurkenndi að flugskírteini sitt væri falsað. Fór fram rassía í kjölfarið og hafa nú sex flugmenn verið handteknir. Frekari rannsókn á flugmannsleyfum allra flugmanna landsins í er í deiglunni.

Þangað til mælir Fararheill ekki með að flogið sé með flugfélögunum Air India, Indigo og SpiceJet Airlines.