
Mallorca og Malaga!!! Brilljant múv alveg. Mynd Play
Greinilegt að forsvarsmenn Play hafa sitthvað lært af Mogensen og falli Wow Air.
Til dæmis það að byrja á að leggja áherslu á heimamarkað áður en yfirmáta gredda og töffaraháttur byrgir mönnum sýn og þeir reyna að eignast allan heiminn á fimm mínútum sléttum eins og eiturflotta bankafólkið okkar fyrir Hrunið. Ruslahaugar sögunnar fullir af svoleiðis liði og reyndar Garðabær líka.
Það gleymist nefninlega æði oft að þó við séum bara tæplega 400 þúsund talsins þá er stór hluti þjóðarinnar að þvælast hist og her um veröldina tvisvar, þrisvar og stundum fjórum sinnum árlega og flest fólk velur þá yfirleitt ódýrasta kostinn sem í boði er hverju sinni. Sökum þess að þrengsli, blóðtappi og andnauð í fjórar til fimm stundir er þess virði til að komast í gott rauðvín sem kostar ekki árslaun, ávexti sem voru ekki týndir árið 2011, söfn sem virkilega gefa þér gæsahúð og spássera um á stuttbuxum frá morgni til kvölds alla liðlanga daga án þess að fá gæsahúð. Svo fátt eitt sé nefnt.
Bæði Mallorca og Malaga eru príma áfangastaðir fyrir landann. Báðir staðir hafa reyndar fengið of stóran skerf af ferðafólki á köflum en hafa líka báðir náð sér á strik án þess að virðast útlifuð skítapleis.
Stór plús í kladdann hjá Play. Nú getum við heimsótt þessar perlur og haft val um hvar okkur langar að vera, hve lengi og hvað við borgum fyrir.
PS: hér fyrir neðan er nífaldur heimsmeistari í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards. Við fáum nokkra aura í hvert sinn sem einhver bókar hjá okkur en ekki risunum og það er okkar eina fjáröflun til að halda þessum vef úti. Öll hjálp vel þegin.







