Í maímánuði 2011 stóð Fararheill fyrir vefkönnun meðal lesenda sinna um álit þeirra á verðlagi almennt í Leifsstöð. Niðurstaðan þá kýrskýr en af 530 sem þátt tóku sögðu 74.9 prósent að Leifsstöð væri okurbúlla.

Lesa má um það nánar hér en nú eru liðin nokkur ár, búið að breyta ýmsu í Leifsstöð og þar barasta aldrei nokkurn tímann verið jafn gott að versla og dvelja samkvæmt auglýsingum flugstöðvarinnar.

Með þær fullyrðingar í huga skýtur skökku við að vart líður dagur án þess að sjá meldingar á samfélagsmiðlum um okrið í Leifsstöð. Kókómjólk á 400 krónur, einföld samloka á 1100 krónur, kaffibollinn upp í 800 krónur og svo framvegis og svo framvegis.

Okkur leikur því forvitni að vita hvað þér finnst í dag. Er hægt að gera góð kaup á flugvellinum almennt eða er grimmilega smurt ofan á vörur og þjónustu í stöðinni? Taktu endilega þátt. Er verðlag í stöðinni að batna eða versna?