Íslenski leitarvefurinn Dohop mun á næstu vikum taka breytingum til hins betra fyrir notendur. Þar verður meðal annars hægt að fletta upp á auðveldan hátt hvernig fargjöld á einstökum flugleiðum hafa tekið breytingum síðustu vikur og mánuði.
Það er ekkert minna en brilljant því þá gætu áhugasamir séð svart á hvítu hversu mjög getur munað á fargjöldum daga, vikna og mánuða á milli.
Ekki minna jákvætt er að meðfram flug- eða hótelleit á ákveðnum dagsetningum listar vefurinn einnig ferðir og gistingu á nálægum dagsetningum ef vera skyldi að þar fáist sama ferð eða gisting enn ódýrara en á þeim dagsetningum sem leitað er eftir. Það gæti vel sparað viðskiptavinum skilding.
Sjálfur fær vefurinn sem hóf starfsemi árið 2004 andlitslyftingu til hins betra og viðmótið verður bæði fallegra og einfaldara.
Fararheill hefur ítrekað borið Dohop saman við aðra vinsæla flugleitarvefi heimsins og þar hefur sá íslenski komið afar vel út.







