Einn úr ritstjórn að skoða flug fimm mánuði fram í tímann og rakst þá á nokkrar flugferðir Icelandair. Sem er súper eðlilegt mál enda flugfélag. Óvenjulegra að þær ferðir á áætlun með Boeing Max 8 vélum félagsins. Sem enn hafa ekki fengið flughæfisvottun og fátt bendir til að þær fái grænt ljós á næstu mánuðum.

Boeing Max á áætlun hjá Icelandair í vetur.

Hremmingar Boeing vegna Max-véla sinna fallið í skuggann af kórónafaraldrinum og nú síðustu vikurnar vegna rasisma og fávitaháttar lögreglu vestanhafs.

Það breytir ekki því að engar fregnir benda til þess að Max-vélar Boeing séu á lokametrunum að fá flughæfnisvottorð frá bandarískum yfirvöldum. Þaðan af síður flughæfnisvottorð frá evrópskum flugyfirvöldum eftir tvö hræðileg flugslys fyrir tæpu einu og hálfu ári síðar. Flugslys sem kostuðu sex hundruð mannslíf.

Þess vegna er athyglivert að Icelandair skuli samt henda þeim rellunum á áætlun með vetrinum. Sem auðvitað sleppur fínt ef þær fá grænt ljós fyrir þann tíma en vei þeim farþegum sem eiga bókað með Max-rellu næstu misserin ef enginn er formlegur stimpill kominn í hús þegar flugið fer í hönd. Það mun kosta vesen og ekki er Icelandair að rokka neitt sérstaklega í þjónustu nú þegar.

Þess utan ætti Icelandair að sjá sóma sinn í að merkja kyrfilega þær flugferðir sem ætlunin er að fljúga þessum meingölluðu rellum Boeing. Það eru nefninlega fjölmargir þarna úti sem kæra sig hreint ekkert um að hefja sig til lofts í Max-vél hvað sem tautar og raular. Þar með talinn sá er þetta ritar.