Hollenska lággjaldaflugfélagið Transavia bætir við tveimur áfangastöðum frá Íslandinu góða þessa vertíðina.

Fjölgun áfangastaða Transavia er örlítil sárabót fyrir alla þá áfangastaði sem við höfum misst úr skaftinu undanfarið.
Flugfélagið sem hingað til hefur nánast eingöngu boðið flug til Parísar hendir Amsterdam í pakkann að þessu sinni og nokkrum ferðum aukreitis til frönsku borgarinnar Nantes á vesturströnd Frakklands yfir hásumarið.
Örlítið sárabót fyrir alla þá áfangastaði sem við höfum misst undanfarin misseri með falli Primera Air og Wow Air og niðurfellingum hjá Norwegian og easyJet.
Amsterdam er príma stopp fyrir alla með loft í lungum og þar fær Icelandair örlitla samkeppni þá leiðina. Forvitnilegri eru þó túrarnir til Nantes sem er vissulega eilítið undarlegur áfangastaður en borgin er með þeim fallegri í Frans.
Sjálfsagt að skoða þessa möguleika ef ferðaþorstinn er alveg að fara með þig 😉







