S purðu heimamann í Barcelóna eða Madríd um miða á stærri leiki í spænska boltanum og oftar en ekki hrista menn hausinn og segja það vonlaust mál. Ekki trúa því enda tóm tjara.

Miða er ALLTAF hægt að fá á leiki í spænska boltanum. En þú verður að eiga við braskarana og kunna að prútta
Einu leikir hvers tímabils þar sem sjénslítið er að verða sér úti um miða á leikdegi er á Santiago Bernabeau, heimavelli Real, þegar Real Madrid tekur á móti Barcelóna og sömuleiðis á Nou Camp, heimavelli Barcelóna, þegar liðið mætir Real. Jafnvel þá eru miðar í boði en verðlagið miðast þá við alla sem telja milljón krónur vera klink.
Reyndin er hjá stóru klúbbunum spænsku að meðlimir stuðningsmannafélaga eiga kauprétt á 70 til 85 prósent allra miða á alla heimaleiki. En þeir mæta ekki alltaf og gróflega má ætla að um helmingur sæta á velli stóru félaganna fari í sölu fyrir hvern leik með litlum fyrirvara.
Sé ekki um risa bikarleik að ræða eða stórliðin Barcelóna og Real Madrid í heimsókn er yfirleitt alltaf hægt að kaupa lausa miða í miðasölu fyrir leik og leikdag á viðkomandi leikvöngum.
Algjör hending er að uppselt sé á leiki. Jafnvel þó það gerist er lítið mál að leita til braskara sem finnast í hrönnum fyrir utan flesta leikvelli leikdaginn. Þeir selja lausa miða svo lítið beri á og heimta auðvitað hærra verð en eðlilegt er en það er sjaldan sem miklu muni nema miðarnir séu á einhverjum stórkostlegum stað.
Áður fyrr var þetta varhugaverð leið til að komast á leiki sökum þess að margir miðanna voru falsaðir þegar allt kom til alls. Falsmiðar heyra þó að langmestu leyti sögunni til á Spáni því það er fjandi erfitt að falsa miða nú til dags. Flestir miðar sem til sölu eru nú hafa verið keyptir í forsölu á lágu verði sem braskarar selja svo áfram.
Formlega er ólöglegt að kaupa miða með þessum hætti og miðarnir verða gerðir upptækir komist lögregla í málið. Annað er þó ekki gert. Þetta er ekki stórt lögbrot á neinn mælikvarða og reyndar úrelt regla. Í flestum öðrum viðskiptum má eigandi gera það sem hann vill við eigur sínar.
Almennt er þetta algeng aðferð við að kaupa miða þó dýrari séu og slíka miða hægt að kaupa í raun fram að fyrsta flauti dómarans. Þá er það allskemmtileg iðja að prútta niður miðaverðið því verð miðans er alltaf umsemjanlegt. Sérstaklega er gott ráð ef áhuginn er ekki að drepa þig að bíða alveg fram að byrjun leiks áður en þú tekur skrefið að næsta braskara. Sé leikurinn nýhafinn er pressan á braskaranum að losna við miðana áður en verðgildið tapast endanlega. Engar áhyggjur af því að finna þá. Þeir finna þig.




