Að öllu eðlilegu eru utanlandsferðir og innkaup í dýrari verslunum erlendis ekki það sem fólk gerir þegar hart er í ári. Engu að síður staðfesta tölur kortafyrirtækisins Valitor að vinsælasta verslun Íslendinga vestanhafs sé undirfataverslunin Victoria´s Secret.
Sömu tölur staðfesta að utanlandsverslun eykst nú hratt á ný eftir mögur tímabil eftir hrunið og kom fram í máli yfirmanns hjá Valitor í spjalli á Bylgjunni í vikunni að þar sé óhætt að tala um tugprósenta aukningu. Kortafyrirtækin fylgjast þannig mætavel með eyðslu viðskiptavina sinna erlendis ef marka má Bergsvein Samper sem situr í framkvæmdastjórn Valitor.
Svo vel reyndar að hann gat látið uppi að vinsælasti áfangastaður kaupglaðra Íslendinga í Evrópu er fatarisinn sænski H&M meðan íslenskir ferðalangar eyða mestu fjármagni í verslunum Victoria´s Secret vestanhafs.
Óskaði ritstjórn Fararheill.is eftir nánari upplýsingum í kjölfar þessa en ekki hefur Valitor orðið við þeirri beiðni. Forvitnilegt væri til að mynda að sjá topp tíu lista yfir verslanir og jafnvel nákvæmlega hvaða vörur eru vinsælastar hverju sinni.
Ekki síður væri forvitnilegt að sjá hvort einhver veitingastaður er vinsælli en aðrir á helstu áfangastöðum Íslendinga eða hversu margir brúka kort sín á strippbúllum erlendis.






