J afnvel þeir sem eru svo forsjálir að fara á löng frönskunámskeið áður en haldið er í ferðalag til Frakklands lenda á vegg þegar kemur að veitingastöðum sem kenna sig við „bouchon.“

„Bouchon“ stendur einfaldlega fyrir rétti frá héraði í kringum Lyon. Mynd jimmy

„Bouchon“ stendur einfaldlega fyrir rétti frá héraði í kringum Lyon. Mynd jimmy

Það eru nú reyndar örlitlar ýkjur af hálfu Fararheill því hægt er að ferðast um velflesta skika Frakklands án þess að finna veitingastaði sem kenna sig við þetta bouchon.

En ekki í Lyon.

Sjáið til, bouchon er nefninlega sæmdarheiti á allnokkrum veitingastöðum í Lyon og næsta nágrenni þar sem áhersla er lögð á rétti úr héraði. Sem er æði neikvætt fyrir alla þá sem eru í megrun því réttir Lyon eru nánast eingöngu feitt og bragðmikið kjöt. Sem merkilegt nokk hefur ekki gert bændur eða íbúa í héraði feitari en annars staðar í Frakklandi og seint verður Frakkinn almennt talinn bollurass.

Bouchon stendur mjög gróflega fyrir rétti á borð við þykkar og matarmiklar pylsur, feitt og seðjandi paté og síðast en ekki síst grillað svínakjöt sem er með því ljúffengara sem fæst af þeirri skepnu. Að ógleymdu beaujolais víni með öllu saman og auðvitað góðum félagsskap.

Þetta er sem sagt algjört nó-nó fyrir megrunarfíkla en Fararheill mælir heils hugar með að aðrir á ferð um Lyon eða næsta nágrenni láti bouchon veitingastað verða sitt fyrsta stopp. Þá getum við persónulega mælt með Café du Jura, Les Fines Gueules og ekki síst Les Saisons í nágrannabænum Ecully. Sá er þekktur um Frakkland vítt og endilangt og ekki að ósekju.

Svo skemmir ekki að gista hér um slóðir fyrir lægsta mögulega verð 🙂