Sá sem bókar flug fram og aftur með Icelandair til Parísar í júnímánuði greiðir fyrir það vel yfir 100 prósent hærra verð en þörf er á samkvæmt úttekt Fararheill.

Ef þú hefur ekkert við peningana þína að gera er Icelandair þitt flugfélag til Parísar

Ef þú hefur ekkert við peningana þína að gera er Icelandair þitt flugfélag til Parísar

París virðist vera hrein gullnáma fyrir risann Icelandair ef marka má hve hátt menn þar á bæ verðsetja ferðir sínar til frönsku höfuðborgarinnar þetta sumarið. Kannski á að rífa sem mest af þeim er langar að upplifa íslenska landsliðið taka þátt á stórmóti fyrsta sinni enda enginn skortur á fólki sem hefur áhuga á því.

Hver sem ástæðan er þá er Icelandair að heimta gróflega 50 þúsund krónur að lágmarki fyrir flug fram og aftur til Parísar í júní, júlí og ágúst samkvæmt úttekt okkar og sjá má á meðfylgjandi töflu. Það er verulega umfram fargjöld lággjaldaflugfélaganna Wow Air og Transavia jafnvel þó töskur séu teknar með.

Á töflunni gefur að líta lægsta verð í hverjum mánuði fyrir sig fram og aftur til Parísar. Hjá Icelandair er taska innifalin í verðinu en ekki hjá Transavia né Wow Air. Bæti fólk töskum með í för hjá Transavia kostar það um tíu þúsund krónur aukalega en um átta þúsund krónur hjá Wow Air. Glögglega mikill verðmunur jafnvel þó töskudrusla fljóti með og allt upp í 100% verðmunur þegar verst lætur.

* Úttekt gerð kl. 19.30 hjá öllum flugfélögum samtímis. Lægsta verð fram og aftur í hverjum mánuði fyrir sig. Enginn farangur hjá Wow Air né Transavia. Hafa skal hugfast að fargjöld flugfélaga breytast ört.