e inn er sá viðburður ár hvert í Köln í Þýskalandi sem þykir öðrum fremri. Kölner Lichter er upplifun eins og þær gerast bestar.

Ein glæsilegasta dómkirkja heims er ekki verri umvafin flugeldum og frumsaminni tónlist

Ein glæsilegasta dómkirkja heims er ekki verri umvafin flugeldum og frumsaminni tónlist

Hátíðin atarna fer fram í júlí ár hvert og hefst á því að fjöldi upplýstra skipa og báta sigla hægt meðfram borginni eftir Rín og þeim fagnað á landi með flugeldasýningum og stórum brennum á einum níu stöðum meðfram ánni. Um borð í öllum fleyum er veislustand og þeir fullir af gestum sem borða, dansa og njóta lífsins.

Ekki er amalegt að fylgjast með langri skipalestinni á bökkum Rínar og er það orðin venja að í landi fagna menn komu þeirra með flugeldum og hvers kyns ljósabúnaði öðrum. Sú sýn ein saman er þess virði að heimsækja borgina.

En þá er enn eftir rúsínan í þýska pylsuendanum. Klukkan hálftólf á slaginu hefst gríðarmikil flugeldasýning frá miðri ánni en ekkert við þá sýningu er tilviljun enda fylgir hún hljómfalli tónlistar sem árlega er sérsamin af þessu tilefni. Hljómþýð tónlistin sem ómar um allan gamla bæ Kölnar í bland við flugeldana og þá stemmningu sem er meðal borgarbúa meðan á þessu stendur er ólýsanlegt ævintýri.

Ekki þarf að fjölyrða um að veitingastaðir meðfram Rín eru pakkfullir meðan á hátíðinni stendur og á þá vinsælustu þarf að bóka með margra mánaða fyrirvara ef ætlunin er að fylgjast með Köln Lichter í rólegheitum yfir rauðvíni og góðum mat.

Heimasíða Kölnar Lichter hér.