K eppnin heitir Mille Miglia, hefur farið fram um rúmlega 80 ára skeið og er sögð sú keppni sem gerði sportbíla frá BMW, Alfa Romeo, Maserati og Porsche fræga á sínum tíma.

Fagrar kerrur, flottar borgir og dúndurveður. Til eru leiðinlegri hlutir en fylgjast með Mille Miglia
Mille Miglia er sennilega lítt þekkt hérlendis en þetta er ein allra frægasta fornbílakeppni samtímans. Sú fer fram árlega um miðjan maí og eins og nafnið gefur til kynna er þetta þúsund mílna löng keppni.
Vissulega er keppnin í dag ekki jafn hörð og áður fyrr þegar þetta var ein mesta sportbílakeppni heims.
Nú á dögum er vissulega keppniskap í fólki en þetta er nær því að vera fornbílakeppni þar sem ríkir sýna dýra fornbíla sína. En að sjá gamla eðaflotta sportbíla þeysast um fallegar sveitir Ítalíu og þröngar götur ýmissa borga landsins er skemmtilegt og borgir þær sem þeyst er um eru ekki af verra taginu.
Hefst keppnin og endar í borginni Brescia en leiðin liggur eftir austurströnd landsins niður til Rómar og upp vesturströndina seinnihlutann. Á leiðinni er ekið gegnum fjölda þorpa og bæja og einnig Veróna, Bologna, Róm, Síena og Flórens.
Mikið sjónarspil. Taktu þér stöðu ef þú finnur þig á þessum vettvangi á þessum tíma.




