H mmm! Svisslendingar skemmtilegt fólk? Fólk verður sennilega lítið vart við slíkt á þvælingi um þetta kostulega land en ef marka má myndbönd ferðamálastofu landsins er stutt í brosið hjá þessari frosnu þjóð.
Jafnvel þó að falleg kynningarmyndbönd skauti létt yfir staðreyndir oft á tíðum má fullyrða að þjóð sem gerir hálfpartinn grín að sjálfri sér í myndböndum handa erlendum ferðamönnum er þjóð sem vert er að heimsækja. Svo þarf ekkert að minnast á guðlega náttúrufegurð landsins.
Út með þig 🙂




