Þ að er líklega aðeins tímaspursmál áður en allar ferðatakmarkanir til Kúbu frá Bandaríkjunum detta dauðar niður á nýjan leik og þó fyrr hefði reyndar verið. En það mun þýða miklar breytingar á eynni og kannski ekki síður, og miður, hafinu kringum eynna.

Hér hefur öll umferð verið bönnuð lengi vel og afleiðingin er nánast ósnertur hafsbotn við Kúbu. Mynd Oleg Lugansk

Hér hefur öll umferð verið bönnuð lengi vel og afleiðingin er nánast ósnertur hafsbotn við Kúbu. Mynd Oleg Lugansk

Kúba, ein allra eyja í Karíbahafinu, státar nefninlega af nánast ósnertum hafsbotni kringum landið. Það helgast auðvitað af takmörkuðum túrisma og enn takmarkaðri aðgangi að köfun við eynna. Þó vissulega finnist hér stöku köfunarmiðstöðvar hefur traffík aldrei verið á pari við það sem gerist í nágrannalöndunum og bátar til brúks sjaldnast vélknúnir.

Þá hafa vélknúin tæki; bátar, kafbátar, skemmtiferðaskip og aðrir dallar ýmsir þurft að taka stóra beygju framhjá Kúbu um áratugaskeið sökum viðskiptabanns Bandaríkjanna.

Fyrir vikið er bæði strandlengjan og hafsbotninn hér eins hreinn og ómengaður og framast er unnt á þessum slóðum. Einu kóralrifin sem dafna fullkomnlega í öllu Karíbahafinu finnast við Kúbu samkvæmt rannsókn sem vísindamenn NOAA, bandarísku haffræðistofnuninni, fékk leyfi til að gera hér fyrir þremur árum síðan.

Og svona ef einhvern dreymir um að hoppa í köfunargalla og sjá dýrðina áður en skipamengun gerir hér allt eins og það er annars staðar er óvitlaust að fara að bóka. Í það minnsta byrja að safna pening.

Lítil þörf er á finna köfunarþjónustu fyrirfram. Tiltölulega auðvelt er að finna aðila sem slíkt bjóða í velflestum strandbæjum og sjaldan flókið að komast að með litlum fyrirvara. Spænska fyrir köfunarþjónustu er servicio de buceo.