Tíðindi

Icelandair býður best til Parísar í sumar

  18/01/2012desember 16th, 2013No Comments

Á dauða sínum átti ritstjórn Fararheill frekar von á en að Icelandair skyti þremur lágfargjaldaflugfélögum ref fyrir rass í verðlagningu. En það gera þeir sannarlega á milli Keflavíkur og Parísar þetta sumarið.

Icelandair skákar þremur lágfargjaldaflugfélögum í verðlagningu til Parísar eins og staðan er. Mynd BrunoA380

Að gamni slepptu er það æði óalgengt að Icelandair bjóði hagstæðari fargjöld til áfangastaða þar sem samkeppni ríkir.

Ekki er  það eingöngu byggt á innsæi heldur og reglulegum verðsamanburði Fararheill á fargjöldum flugfélaganna. Vitaskuld er það einnig að flestu leyti eðlilegt með tilliti til að Icelandair auglýsir sig ekki sem lágfargjaldaflugfélag.

Það gera hins vegar Transavia, Iceland Express og Wow Air sem öll mælast dýrari til og frá París að meðaltali í júní og júlí í sumar sé mið tekið af uppgefnu verði á heimasíðum flugfélaganna í dag 18. janúar.

Evrópska flugfélagið Transavia sem er hið eina sem býður flug milli Keflavíkur og Orly flugvallar við París í stað De Gaulle frá næsta sumri á reyndar lægsta verðið báðar leiðir fyrir einn einstakling. Þar finnst eitt einasta fargjald á 39.834 krónur miðað við gengi dagsins. Flest fargjöld þeirra eru þó dýrari en það, 44 til 50 þúsund, og í þokkabót verða farþegar þeirra að greiða aukalega fyrir allan farangur umfram tíu kíló.

Hið nýja Wow Air býður París í sumar og þeirra lægstu fargjöld báðar leiðir í júní kosta 54.991 krónu og í júlí finnast ekki ódýrari fargjöld en milli 62 og 65 þúsund krónur.

Sömuleiðis eru fargjöld Iceland Express vart samkeppnishæf. Ódýrustu fargjöldin með þeim finnast á 63.800 krónur júní og júlí.

En viti menn! Hjá Icelandair finnst töluverður fjöldi flugsæta báða mánuðina sem um ræðir á 40.720 krónur þó ekki komi á óvart að inn á milli læðast verð sem eru bæði út í Hróa og Hött. Þannig geta áhugasamir pungað út rúmum 80 þúsundum fyrir sömu ferð ef menn velja rétta flugdaga.

Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar þegar nær dregur sumri og þau fargjöld sem nú finnast geta hækkað töluvert þegar fram líða stundir.