Aldrei er París fallegri en að sumarlagi og það jafnvel þó borgin sé troðin af milljónum misvitra ferðamanna. Hvaða flugfélag er að bjóða okkur bestu kjörin á flugi þangað sumarið 2017?

Paris je t’aume

Íslendingar hafa val um þrjú flugfélög til Parísar og heim aftur og allir aðrir en Bjarni Ben og Engeyjarmafían ættu að hafa vit á að gera verðsamanburð. Samkeppni nýtist engum nema það sé gert reglulega.

Þeir sem það gera komast að nokkuð óvæntum tíðindum. Til dæmis þá staðreynd að lægstu fargjöld Icelandair eru lægri en lægstu fargjöld Wow Air tvo mánuði næsta sumars. Þeir komast líka að því að íslensku flugfélögin eru hreint ekki að bjóða lægsta verðið heilt yfir.

Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflu en við kynntum okkur lægsta verð allra þriggja flugfélaganna frá maí og fram í ágúst. Þar um að ræða lægsta verð aðra leið út með innritaða tösku meðferðis.

* Úttekt gerð kl. 22 þann 21. mars 2017 samtímis hjá öllum aðilum. Lægsta verð í hverjum mánuði fyrir sig fyrir einn einstakling með tösku. Hafa skal hugfast að verðbreytingar eru örar hjá öllum flugfélögunum.