S é til Nýja-Sjáland er þá ekki eðlilegt að einhvers staðar sé að finna Gamla-Sjáland? Eða voru það Danir frá Sjálandi sem gáfu þessum fallegu eyjum í suðri nafn?

Sjáland hið nýja er nefnt í höfuð héraðs í Hollandi. Mynd Reto Fetz
Nei og nei eru svörin við þessum spurningum. Þó er ályktunin eðlileg. New York er jú nefnd í höfuðið á York í Englandi og áður hét hún Nýja-Amsterdam.
Að forminu til er ekkert sem heitir Gamla-Sjáland en í Hollandi er að finna héraðið Zeeland hvaðan þeir sem gáfu Nýja-Sjálandi nafn komu. Það gerðist með formlegum hætti árið 1645 og eyjurnar fengu nafnið Nova Zeeland.
Það er af því sem hið enska heiti New Zealand er svo dregið og er opinbert heiti í dag.
Reyndar má furða sig á nafngift Hollendinganna. Holland er jú flatara en pönnukaka sem á alls ekki við um fjalllendar eyjur Nýja-Sjálands. Ekki-Sjáland hefði verið heppilegra nafn.