S vona ef þú vilt örlitla tilbreytingu frá ljúfum sandströndunum á Kanarí er þjóðráð að halda örlítið upp í fjöllin. Þá sérstaklega skoða gíginn sem varð til eftir síðasta eldgosið sem hér varð fyrir tvö þúsund árum eða svo.

Nokkuð áhrifaríkt að ganga eftir gígbarmi Bandama gígsins. Mynd el
Bandama gígurinn, Caldera de Bandama á frummálinu, er stór og fallegur nánast hringlaga gígur sem finnst á milli borganna Telde og Las Palmas í norðausturhluta eyjunnar. Frá höfuðborginni tekur litlar 20 mínútur að komast hingað.
Þetta er gígur sem sjón er að sjá enda er hann 220 metra djúpur, óvenju vel grösugur miðað við eyjuna og í gígbotninum býr meira að segja fólk sem yrkir jörðina.
220 metrar kann að virðast lítið en það er hægt að bæta úr því með því að klifra upp á hæsta tindinn hér. El Pico heitir sá og er í tæplega sex hundruð metra hæð. Af toppi hans er útsýnið yfir gíginn orðið æði áhrifaríkt. Ekki síður áhrifaríkt að ekki aðeins má sjá gíginn fallega heldur nánast alla Kanarí eins og hún leggur sig. Það sannarlega sjón að sjá.
Extra bónus er hér fyrir golfáhugafólk því við einn gígbarm Bandama er fyrirtaks hótel og þar glæsilegur golfvöllur sem tilheyrir golfklúbbi Las Palmas. Hringur hér fæst niður í tólf þúsund krónur en aðeins í boði að spila á virkum dögum.