Þeir eru margir bíláhugamennirnir sem dreymir um, einu sinni um ævina allavega, að upplifa sama hraða og spennu sem ökumenn Formúlu 1 kappaksturskeppninnar upplifa í keppnum sínum.

Eins og annað sem byggt er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki smátt við hið glænýja Ferrari World. Mynd visitabudhabi
Koma hönnuðir Ferrari bílaframleiðandans til sögunnar en þeir hafa haft hönd í bagga við hönnun og framleiðslu á hraðasta rússíbana heims þar sem hámarkshraðinn er 240 kilómetrar á klukkustund.
Formula Rossa heitir fyrirbærið og er hluti af stórum Ferrari skemmtigarði, Ferrari World, sem rekinn er í Abu Dhabi í Sameinaðu arabísku furstadæmunum.
Þar er aðeins um 24 mismunandi skemmtitæki að ræða undir einu risastóru þaki og telja eigendur að Ferrari Rossa rússíbaninn sé aðdráttaraflið. Þar situr fólk í eftirlíkingu af Ferrari Formúlu 1 bifreið og rússíbaninn líkir eftir hraðaaukningu og hámarkshraða alvöru bílanna. Hægt er að upplifa 4,8 G við rúnt í þeim rússíbana.
Aðgangur að þessum heimi Ferrari er þó ekki ókeypis fremur en annað frá ítalska bílaframleiðandanum. Lágmarksverð er 6.800 krónur fyrir fullorðinn þegar þetta er skrifað og er innifalinn aðgangur að öllum tækjum en standa verður í röð við þau öll. Til að kaupa forgangsmiða sem veitir forgang framfyrir raðir þarf að punga út 11.500 krónum fyrir einn fullorðinn og 8.200 fyrir unglinga og smáfólk.
Heimasíða Ferrari World hér.







