Það mega bæði Icelandair og Wow Air eiga að á þeim flugleiðum félaganna þar sem þriðji samkeppnisaðilinn er til staðar mæta þau bæði ótrúlega sterk til leiks. Allavega ef miða má við fargjöld til og frá París næsta sumarið.
Úttekt Fararheill á flugmiðaverði frá Keflavík til Parísar og heim aftur í júní, júlí og ágúst leiðir í ljós að tiltölulega litlu munar á hreinu og beinu verði milli Wow Air og franska lággjaldaflugfélagsins Transavia sem einnig flýgur þessa leið í sumar eins og síðasta sumarið.
Eins og sést á meðfylgjandi töflu er hagstæðast að kaupa fargjald til Parísar í júní en verðið hækkar töluvert hjá öllum þremur aðilum þegar líða fer á sumarið. Ef eitthvað þá eru Frakkarnir að bjóða best í öllum tilvikum þó reyndar Wow Air bjóði jafnvel í ágúst. Icelandair er þó ekki langt á eftir lággjaldafélögunum tveimur og ekki bólar á neinu ruglverði eins og oft poppar upp á stöku dagsetningum hjá því flugfélagi.
Þar með fýkur strax út í hafsauga hið nýja loforð Wow Air um að bjóða alltaf lægra verð. Það er þá annað loforð félagsins sem dettur dautt niður á skömmum tíma.
En þessi tafla að ofan segir ekki alveg alla söguna. Þó deila megi um hvað er lággjaldaflugfélag og hvað ekki og Icelandair sé að mjög mörgu leyti mun lakara flugfélag en betri lággjaldafélög heims hvað varðar þjónustu ýmsa og nýjar og þægilegar vélar þá er það enn svo að Icelandair leyfir fólki að taka 23 kíló af farangri með auk handfarangurs. Það gera hvorki Wow Air né Transavia nema greitt sé aukalega fyrir.
Við skulum því til að allrar sanngirni sé gætt skoða sömu verðtöflu en nú er farþegi með eina 23 kílóa tösku með í öllum ferðum fram og aftur. Við megum ekki gleyma að fólk sem er á leið í lengri sumarleyfisferðir þarf að hafa farangur með sér.
Þannig sett upp kemur dálítið forvitnilegt í ljós.

Sé farþegi með sína 23 kílóa tösku með í öllum tilvikum hækkar verðið hjá Wow Air og Transavia og niðurstaðan er því þessi.
Allt í einu líta fargjöld Icelandair hreint ekki illa út. Nú er Wow Air sigurvegarinn enda lægstir í tveimur tilfellum en þó það sjáist ógreinilega á þessari töflu þá var ódýrasta fargjald Wow tólf krónum lægra en hjá Icelandair í júní. En Icelandair býður líka besta verðið í ágúst þegar þeirra fargjöld er 200 krónum lægri en lægsta verð Wow Air. Um Frakkana þarf ekki að hafa mörg orð. Þeir eru orðnir aftarlega á merinni enda kostar það 25 evrur að taka 23 kílóa tösku með hverja leið fyrir sig. Gjald Wow Air fyrir slíkt er 2.900 krónur.
* Úttektin gerð kl 22 þann 31. janúar 2013 og notast við miðgildi krónu gagnvart evru á þeim tíma. Hafa skal í huga að fargjöld flugfélaganna breytast ótt og títt og oftast nær upp á við.
** Transavia er dótturfélag Air France og flug félagsins eru til og frá Orly flugvelli en ekki Charles de Gaulle eins og Wow Air og Icelandair. Þá skal og hafa í huga að velflest flug franska félagsins til Íslands í sumar eru næturflug.









