Hrollur fer um flesta þá erlendu ferðamenn sem ganga á land á Brúðueyjunni í síkjum La Xochimilco skammt frá Mexíkóborg. Þar hanga mörg hundruð brúður í þykkum trjágróðri og margar hverjar helst til ógnvekjandi.
Brúðueyjan, Isla de Las Muñecas, hefur öðlast töluverða frægð hin síðari ár og er eitt helsta stopp margra á ferð um Mexíkóborg.
Þar hanga og vekja ýmist hrifningu eða hroll gamlar brúður í nánast hverju tré og þó fallegt kunni að virðast í dagsbirtu er það vægast sagt hrollvekjandi þegar kvölda tekur.
Hvers vegna hér hanga brúður í öllum trjám er ekki hundrað prósent ljóst.
Ein sagan segir að eini íbúa þessarar litlu eyju hafi tekið upp á því fyrir mörgum árum að hengja upp brúðu til minningar um stúlku eina sem hér drukknaði við leik. Það vatt upp á sig því siðurinn breiddist út og brúðunum fjölgaði sýknt og heilagt og finnast nú fleiri en ein í flestum trjám.
Í öllu falli nýtur eyjan virðingar Mexíkóbúa sem hafa allsérstakar skoðanir á dauðanum og dauðum. Nú hefur eyjan líka öðlast frægð meðal ferðafólks enda uppátækið merkilegt og túrismi orðinn nokkur atvinnuvegur hér um slóðir.
Fararheill mælir þó ekki með kvöld- eða næturheimsókn fyrir hjartveika.





