Vart hefur farið framhjá mörgum að fram fer á netinu kosning um hin nýju sjö undur veraldar en almenningi alls staðar í heiminum er heimilt að taka þátt og kjósa milli þeirra 21 staða sem til greina koma. Í raun er um tvær kosningar að ræða enda bæði verið að kjósa sjö náttúruleg undur veraldar annars vegar og manngerð undur hins vegar.
Hér er hægt að taka þátt en ekki eru allir jafn hrifnir af þessu uppátæki og er óvíst að úrslitin hafi nokkra merkingu þegar fram líða stundir. Ástæðan sú að kosningin er á vegum einkaaðila en ekki stofnunar á borð við Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.
Engu að síður forvitnilegt að sjá niðurstöðuna sem birt verður formlega þegar kosningu lýkur.
Sjö undur veraldar á miðöldum:
- Stonehenge
- Colosseum í Róm
- Katakomburnar í Kom el Shoqafa í Egyptalandi
- Kínamúrinn
- Postulínsturninn í Nanjing Kína
- Hagia Sophia
- Skakki turninn í Písa
Sjö undur veraldar í fornöld:
- Hengigarðarnir í Babýlon
- Vitinn í Alexandríu
- Styttan af Zeuss á Ólympíufjalli
- Hof Artemis í Ephesus
- Mausollus grafhýsin í Halicarnassus
- Styttan af Helíos á eyjunni Ródos
- Pýramídarnir á Giza






