E r eitthvað stórfenglegra í veröldinni en háir og tignarlegir fossar og vatnsföll? Á ritstjórn Fararheill.is eru menn sammála um að það sé fyrir framan slík náttúruöfl sem menn finna mest til smæðar sinnar.

Hverjir eru fallegustu og eða tignarlegustu fossar heims? Líkast til fer það eftir hverjum og einum hvaða fossar heims falla í þá flokka en sumir fossar njóta þó almennrar hylli fólks hvaðanæva að. Nokkrir þeirra eru þessir:

♥  Á hálendi Guyuana í Suður Ameríku rennur áin Potaro gegnum iðjagræna hitabeltisskóga þangað til hún kemur að Kaieteur fossinum sem allir geta verið sammála um að er næstum ólýsanlega stórkostlegur. 226 metra hár eða sem nemur þremur og hálfri Hallgrímskirkju en það sem setur punktinn yfir i-ið er hversu aflmikill hann er.

Sökum þess hve afskekktur Kaieteur fossinn er hafa ekki mjög margir litið hann augum. En stórkostlegur er hann. Mynd John Gilbert

Sökum þess hve afskekktur Kaieteur fossinn er hafa ekki mjög margir litið hann augum. En stórkostlegur er hann. Mynd John Gilbert


♥  Margir kannast við ánna Mjólká fyrir vestan en færri þekkja eflaust Mjólkurfossa í Góa héraði á Indlandi. Um er að ræða fjölda fossa sem falla úr Mandovi ánni eftir monsún rigningar árlega. Falla þeir niður 309 metra og skapa allnokkur tímabundin lón við rætur fjallsins Dudhsagar þar sem vinsælt er að baða sig þegar hitastigið er yfirþyrmandi.

Dudhsagar fossarnir eru mun mikilfenglegri en þessi mynd sýnir. Ekki verra að fín laug er við rætur fossins þar sem kæla má sál og líkama

Dudhsagar fossarnir eru mun mikilfenglegri en þessi mynd sýnir. Ekki verra að fín laug er við rætur fossins þar sem kæla má sál og líkama. Mynd K.Shabistakh


♥  Á landamærum Argentínu og Brasilíu eru sennilega fallegustu vatnsföll heims sem ganga undir nafninu Iguazu fossar, Foz de Iguazu. Ekki einn foss og ekki tveir heldur 275 þegar allir eru taldir stórir og litlir. Þeir hæstu falla 82 metra. Skemmtileg tilviljun að eins og Eiríkur Rauði gleymdi landafundum sínum í Norður Ameríku þá gleymdust fossarnir eftir að spænski landkönnuðurinn Cabeza de Vaca uppgötvaði þá fyrstur vestrænna manna 1541. Það var ekki fyrr en á nítjándu öld sem vestrænn maður fann þá að nýju.

Óumdeilanlega einhver stórfenglegustu vatnsföll jarðar á landamærum Paragvaí, Brasilíu og Argentínu. Mynd Amy

Óumdeilanlega einhver stórfenglegustu vatnsföll jarðar á landamærum Paragvaí, Brasilíu og Argentínu. Mynd Amy


♥  Hæsta vatnsfall jarðar finnst langt inn í frumskógi í Canaima þjóðgarðinum í Venezúela í Suður Ameríku. Salto Angel fellur hvorki meira né minna en 979 metra niður og sú hæð gerir það að verkum að mistur er nánast alltaf kringum fossinn árið um kring. Þá er og erfitt að komast að fossinum lengst upp í landi og krefst töluverðar skipulagningar nema fólk hafi efni á að leigja þyrlu eða flugvél. Engu að síður er fossinn mesta aðdráttarafl landsins.

Við liggur að orðið stórfenglegt sé æði aumt þegar kemur að Salto Angel fossinum. Magnað fyrirbæri. Mynd Inaki Lopez

Við liggur að orðið stórfenglegt sé æði aumt þegar kemur að Salto Angel fossinum. Magnað fyrirbæri. Mynd Inaki Lopez


♥  Engin umfjöllun um fallega fossa getur sniðið hjá Viktoríufossum eða Mosi-oa-Tunya eins og innfæddir nefndu hann.Fossinn rennur úr Zambezi ánni á landamærum Zimbambwe og Zambíu. Hann er í hópi sjö náttúrulegra undra heims og ekki að undra enda stórfenglegur í alla staði. Fossarnir eru breiðasta vatnsfall jarðar að því er talið er enda 1,7 kílómetri á breidd en hæsta fall er 108 metrar. Vinsælt er meðal hugrakkra að demba sér út í litla en djúpa laug á gljúfurbarminum á einum stað. Sá kallast Djöflalaug, Devils Pool, og gefur ansi magnaða sýn niður fossana og þverhnípið. Það er þó ekki ráðlegt fyrir lofthrædda enda bráður bani búinn öllum er fram af fara. Sem hefur gerst.

Viktoríufossar er einhver fegursta náttúrusmíð jarðar og fossarnir einir þess virði að heimsækja Afríku

Viktoríufossarnir eru mun mikilfenglegri en þessi mynd sýnir en það á reyndar við um velflesta fossa heims að myndir gera þeim illa skil. Mynd B.Thorasen


♥  Noregur er fjalllent land og skorið og það eru kjöraðstæður fyrir fallega fossa sem enginn skortur er á í því ágæta landi. Margir kallaðir en Langfossen verður að teljast einn sá fallegasti. Staðsettur í Etne héraði í vestur Noregi og þar sem þjóðvegur liggur beint undir honum er auðvelt að sjá hann og mynda. Fossinn fellur 600 metra niður í Åkrafjorden.

Margir fallegir fossar prýða ríki Norðmanna en líklega fremstur jafningja er Langfossen fallegi. Mynd lesmond

Margir fallegir fossar prýða ríki Norðmanna en líklega fremstur jafningja er Langfossen fallegi. Mynd lesmond