Tíðindi

Gríðarlegt tap á rekstri Icelandair

  30/04/2010maí 17th, 2014No Comments

Ársreikningur Icelandair fyrir árið 2009 er jafn blóðugur og orðspor Pálma í Fons eftir bankahrunið en samkvæmt skýrslu stjórnar þessa stærsta flugfélags landsins nam tapið 2009 10,7 milljörðum. Sem þýðir að Icelandair tapaði 30 milljónum króna hvern einasta dag ársins 2009.

Er orsakanna að leita í skuldbindingum félagsins þegar menn á borð við Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson réðu ríkjum árið 2006. Sýpur félagið enn seyðið af fjárfestingum þeirra fjórum árum áður samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Er hún orðuð með öðrum hætti þó.

Er því ljóst að fjárfestingar félagsins á góðæristímanum eru að fara með félagið í gröfina ef fram heldur sem horfir. Segir sig enda sjálft að ekkert fyrirtæki íslenskt þolir 30 milljóna króna daglegt tap án þess að gjaldþrot blasi við fyrr en síðar.

Er þetta áhyggjuefni fyrir ferðalanga enda stendur Iceland Express, félag Pálma Haraldssonar, illa og lítið má út af bregða þar samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fararheilla.