Þ ess verður lítið vart hérlendis en það er nýr áfangastaður sem mjög er farinn að heilla Evrópubúa sem leiðir eru orðnir á fjöldaferðamennskunni á Kanaríeyjum en vilja engu að síður njóta sólar á sólbrenndum sandströndum.
Grænhöfðaeyjar, Cabo Verde, er þessi áfangastaður og þó enn sé langur vegur í að þar skapist sá fjöldatúrismi sem einkennir marga aðra hefur orðið mikil bylting þar á fáum árum. Varla fannst stakt hótel á öllum eyjunum fyrir fimmtán árum síðan en nú er öldin önnur og Grænhöfðaeyjar með. Af þeim níu eyjum sem búið er á finnast nú hótel eða gististaðir á sex þeirra.
Einn mesti kosturinn við dvöl þar að frátöldu yndislegu veðri og frábærum ströndum þykir að staðurinn er ekki pakkaður af ferðamönnum og stórir hlutar þeirra tíu eyja sem saman heita Grænhöfðaeyjar eru galtómir og víðáttur einar.
En kannski verða eyjarnar aldrei það aðdráttaafl sem til að mynda Kanaríeyjar eru vegna þess að þó mjög margt sé vænlegra á hinum fyrrnefndu glíma eyjaskeggjar á Grænhöfðaeyjum við fjanda einn leiðinlegan sem ekki er vandamál á Kanarí:. moskítóflugur.
Hér þrífast þær í tonnavís og eru eins og allir sigldir menn vita með því allra leiðinlegasta á ferðalögum nálægt miðbaug. Það sem verra er er að mikill fjöldi þeirra sýkir bæði heima- og ferðamenn af bæði malaríu og ekki síður af beinbrunasótt.
Svo stórt er þetta vandamál að árið 2018 voru tilkynnt 21 þúsund tilfelli beinbrunasóttar, dengue fever, og af þeim létust sex að minnsta kosti samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Þó það ár hafi verið nokkuð einstakt þá greinast tilfelli hér árlega. Nógu mörg sennilega til þess að Grænhöfðaeyjur munu seint toppa Kanaríeyjarnar.





