Ó líkt Japönum sem plana hvern þumlung 50 ár fram í tímann eru Kínverjar almennt alveg á hinum endanum. Þeir vilja frekar 20 þúsund kall í vasann núna en milljarða króna árið 2030. Ágætt að hafa í huga ef heimsókn til Kína er á döfinni.

Best að hafa eitt á kristaltæru; Kínverjar fjarri því eina þjóðin sem reynir að græða hægri, vinstri á erlendum ferðamönnum. Það reyna bláfátækir þegnar velflestra þjóða enda súperljóst að blondínur frá vesturheimi eru allir milljónamæringar eða þaðan af betra.

Mun hættulegra en að ganga yfir gangbraut í vestrænum löndum

Hér fimm aðstæður sem þú vilt ALLS EKKI upplifa neins staðar í Kína:

1) Tehúsasvindlið

Þetta gildir fyrst og fremst um erlenda karlmenn sem valsa um vinsæla túristastaði í Kína en kvenfólk er ekki laust við þetta heldur. Svindlið snýst um að erlendir einfarar á labbinu um þekkta staði í landinu fá oftar en ekki félagsskap mjög fljótlega og extra fljótlega ef augljóst er að fólkið er nýkomið til landsins og hefur ekkert vit á neinu. Það yfirleitt fallegar innlendar konur eða karlmenn sem þykjast einnig vera nýkomin til borgarinnar og eru óvenjulega vinaleg miðað við fólk almennt. Þetta lið vingast við þig og blaðrar einhverja steypu en vill svo gjarnan fá þig í kaffi og kleinur til að spjalla meira. Svindlið er að umræddir aðilar fara með ferðafólk á tiltekna te- eða kaffistaði og þegar upp er staðið kostar teið eða kaffið tugþúsundir króna og þér best að borga þegjandi og hljóðalaust ellegar færðu félagsskap frá tveimur til þremur kraftajötnum sem vilja gjarnan fylgja þér í næsta hraðbanka.

2) Stefnumótasvindlið

Það finnast ein átta kínversk vinsæl öpp sem svipar til Tinder í hinum vestræna heimi. Þar finnur fólk kynstrin öll af heillandi og fallegum Kínverjum. En viti menn! Svindlarar vita vel að sumir erlendir plebbar skoða slíka vefi hægri vinstri. Sami díll og í fyrsta dæminu: stúlka eða strákur fellst á stefnumót með erlendum aðila en aðeins ef hist er á tilteknum stað. Sá tiltekni staður er yfirleitt lítt þekktur staður utan alfaraleiða og þegar upp er staðið kostar allt tífalt meira en venjulega. Deitið fer fyrir lítið þegar skitinn málsverður kostar fleiri tugi og jafnvel hundruð þúsunda króna.

3) Prúttið

Kínverjar sjálfir prútta um allt undir sólinni og hafa gert frá alda öðli. Prútt er svo inngróið í sál Kínverja að það er nánast dónalegt að prútta ekki. Gildir þá einu hvort þú ert að kaupa pylsu af götusala eða gull í fansí verslunarmiðstöð. Taktu mið af því í hvert sinn sem þú sérð eitthvað spennandi. Gildir þá einu hvort þú ert í marmaraþrunginni verslunarmiðstöð eða langar í pylsu hjá næsta götusala. Allt er falt fyrir rétt verð og prútt mun undantekningarlaust reynast þér betur en ekki.

4) Prump, rop og hrækjur

Það hljómar auðvitað súper-kjánalega að mæla með prumpi, ropi eða hrækjum á almenningsstöðum. En ekki þó í Kína. Rop og eða prump þykir nefninlega af hinu góða víðs vegar í landinu. Jamm, við vitum að það hljómar undarlega en er staðreynd samt. Rop, prump eða feit slumma úr munni þykir nefninlega alls ekki mínus í mörgum borgum Kína. Þvert á móti. Að ropa hátt og duglega opinberlega er ýmis staðar litið afar jákvæðum augum. Það merkir einungis að viðkomandi sé fullsaddur og um leið sáttur við menn og málefni. Víða þykir það meira að segja stór bónus ef einhver ropar fyrir framan kokk á veitingahúsi. Það merkir að viðkomandi er svo sáttur við matinn að hann át yfir sig. Að sama skapi þykir afar ókurteist að halda aftur af góðum fretara. Kínverjar margir segja það þýða mengun fyrir líkamann að halda inni einum feitum. Best að láta vaða strax og slíks verður vart og ekki síst á veitingahúsi.

5) Að ganga yfir götu er alltaf lífshættulegt

Umferðarmenning í Kína hefur tekið stakkaskiptum til hins betra síðustu árin. Sú menning að mörgu leyti betri en í stórum vestrænum löndum því Kínverjar virða allt hundrað prósent sem Kommúnistaflokkurinn, CCP, gerir og segir. Nei, við ekki að meina íslenska leikjafyrirtækið CCP sem hefur alls enginn áhrif á hegðun tugmilljóna Kínverja. En jafnvel CCP getur ekki breytt áratugalangri hegðun sísona. Það er nefninlega merki um fátækt og almennan aumingjahátt að labba nokkurn skapaðan hlut og af því leiðir að gangbrautir eru stórhættulegir staðir alls staðar í Kína. Ekki hvað síst þegar haft er í huga að ökumaður sem verður gangandi vegfaranda að aldurstila eða stórslasar viðkomandi, sleppur hundrað prósent við allt vesen ef sá eða sú hin sama bara yfirgefur vettvanginn í flýti. Ef þú stoppar og veitir hjálp er ökumaður bundinn af því að greiða tiltekinn hluta launa sinna til fórnarlambsins alla lífstíð. Það því fjárhagslega jákvætt að skilja fórnarlömb eftir á götunni ef svo vill til að eitthvað illt hendir. Gakktu yfir gangbraut í Kína með þetta bak við eyrað.