A lltaf gaman að fara í sund. Enn skemmtilegra að synda með leikglöðum höfrungum. En hvernig ætli sé að synda við hlið fjögurra tonna fíls?

Á sumum stöðum er í boði að synda með fílefldum fílum. Það hlýtur að vera saga til næsta bæjar hið minnsta að prófa slíkt.
Merkilegt nokk eru fílar mætagóðir í sundi og ferðaþjónustuaðilar bæði í Asíu og Afríku eru farnir að kveikja á perunni í því tilliti.
Meðan sund með fílum er í undirbúningi fyrir ferðafólk í Botswana í Afríku eru menn löngu farnir að bjóða upp á slíkt í takmörkuðum mæli bæði á Indlandi og sérstaklega í Tælandi.
Það kann að hljóma hættulega að fljóta við hliðina á fjögurra tonna fíl sem buslast áfram eins og enginn sé morgundagurinn. En þó Herdís Storgaard mæli sennilega ekki með slíku er hvergi að finna við leit á netinu að slysi eða alvarlegum óhöppum meðal þeirra sem þetta hafa prófað.
Líklega er þetta komið til að vera nú þegar nútíma ferðamaðurinn verður sífellt leiðari á því sem í boði er og kröfur um nýtt og ferskt sífellt háværari. Gallinn þó sá að ýmsir vafasamir ferðaþjónustuaðilar bjóða þetta en níðast svo á dýrunum um leið og ferðamaðurinn er horfinn fyrir hornið.
Sem er ægileg synd því fílar eru einhverjar stórkostlegustu verur jarðar og þeim slátrað hraðar á heimsvísu en við getum sagt heibabbílúlla vegna fílabeinsins. Einn staður sem fær sérstaklega góðar einkunnir fyrir góða meðferð á dýrunum, og skortur er á slíku víða, er Patara fílabúgarðurinn í Chiang Mai í Tælandi en þangað ferðast margir Íslendingar árlega.
Þar læra menn allt sem þeir vilja um fílana áður en farinn er rúntur á baki og síðar lagst til sunds. Hversu yndislegt er að eyða degi í slíkum félagsskap? Fararheill getur persónulega vottað að hér er eins vel gert við dýrin og framast er unnt.
Heimasíðan hér og endilega láttu krónur af hendi rakna til að hjálpa þessum góðu sálum sem sinna asískum fílum eins vel og hægt er. Það er meira en segja nú þegar ferðamenn eru hvergi sjáanlegir.




