F áum dylst að flugferðalög eru orðin töluvert meira mál en það var áður fyrr með auknum gjöldum, auknum öryggiskröfum og ekki síst auknum ferðamannafjölda. Tafir eru algengar og kannanir sýna að meirihluti er sammála um að þjónustustig almennt hafi versnað til muna hjá flugfélögum heimsins.

Oft er ekki auðvelt að njóta flugferða en þessi ráð geta hjálpað.

Oft er ekki auðvelt að njóta flugferða en þessi ráð geta hjálpað.

Hér eru fimm fínar hugmyndir fyrir ferðalagið til að vera við öllu búin og gætu gert það mögulegt að njóta aðeins betur en ella.

♥  Taktu morgunflugið ef það er hægt –  Tölfræði IATA, Alþjóða Flugmálastofnunarinnar, sýnir svo ekki verður um villst að vélar sem fara af stað á morgnana og fyrir hádegið tefjast mun sjaldnar en flug sem eru eftir hádegi. Þetta getur skipt sköpum ef ná þarf tengiflugi og ekki síður til þæginda enda fátt leiðinlegra en sitja fastur í vélum sem sitja í röðum í bið á vellinum.

♥  Pakkaðu rétt og létt –  Fyrir fimmtán árum síðan skipti engu hvað farþegi var með af farangri en nú þegar hvert einasta flugfélag hefur sérreglur og sérgjöld skiptir þetta máli. Stór meirihluti lágfargjaldaflugfélaga heimta þóknun fyrir hverja tösku hvort sem hún er handtaska eða hefðbundin og sú þóknun getur verið væn. Sama er að gerast smátt og smátt hjá stóru flugfélögunum.

♥  Fylgstu með seinkunum áður en farið er á völlinn –  Ótrúlega margir ferðalangar mæta enn á flugvöllinn í þeirri vissu að flugið sé ávallt á réttum tíma. Það sleppur í flestum tilvikum hér á landi, nema þegar eldgos geysa, en staðreyndin erlendis er að seinkanir eru fremur algengar. Biðtími á flugvellinum er sjaldan sérstaklega spennandi.

♥  Byrgja sig upp fyrir brottför –  Hafa skal með sér smáræði af mat og vatni um borð í vélarnar. Slíkt kemur sér vel ef maturinn um borð er óætur en ekki síður mikilvægt ef tafir verða og langur tími líður um borð áður en boðið er upp á veitingar. Ekki hvað síst nú þegar eitt aumingjans vatnsglas getur kostað fleiri hundrað krónur eins og hjá helstu lággjaldaflugfélögum.  Ekki síður góð hugmynd að borða vel fyrir flug svo auðveldara sé að sofna á leiðinni.

♥  Þekktu rétt þinn –  Öll flugfélög, þau íslensku líka, reyna að koma sér hjá öllum kostnaði jafnvel þótt farþegar eigi á því rétt samkvæmt lögum um loftferðir. Hér má sjá samantekt um helstu atriði..