
Tælenska bahtið. Mikill munur er á hvar þú skiptir erlendum seðlum í mynt heimamanna.
Sitt sýnist hverjum í þessum efnum yfirleitt og vænt þætti okkur um að fá orðsendingu á meili eða gegnum samfélagsmiðla ef einhver kann betri trix við að skipta peningum og fá sem mest og best fyrir.
Ritstjórnarmeðlimir heimsótt Tæland alls sex sinnum og þar af einn þrívegis og dvalið lengur en mánuð í einu. Við höfum því sæmilega hugmynd um hvar þú færð mest fyrir evrurnar eða dollarana sem eru bestu gjaldmiðlarnir til að taka með sér til þessa lands. Munurinn á skiptistöðum er nefninlega assgoti mikill.
Ráð A er að taka með sér dollara fremur en evrur. Dollarinn vinsælli og þekktari í landinu og víða í strjálbýli er meira að segja hægt að greiða fyrir hluti beint með dollurum en sjaldnar evrum.
Ráð B er að taka með sér eins verðlitla seðla og kostur er. Tíu, tuttugu eða fimmtíu dollarar eru teknir víðast hvar en um leið og fólk er komið í hundrað dollara gæti komið upp vandamál. Það eru jú aðeins stærri verslanir sem ráða við að skipta slíku eða gefa til baka. Þú brúkar ekki 100 dollara á mörkuðum.
Ráð C er að skipta erlendum seðlum strax á gjaldeyrisskiptafyrirtækjum á flugvelli við komu. Okkur sýnist ótvírætt að þar er skiptgengið yfirleitt 10 – 20 prósent hagstæðara en brúka slík fyrirtæki eftir að inn í landið er komið. Á flugvöllum eru yfirleitt fleiri en einn aðili en samkvæmt okkar reynslu eru fyrirtækin Superrich eða VASU bestu kostirnir. Álagning þeirra er oft 8 – 12 prósent lægri en annarra.
Ráð D er að reyna að nota ekki hraðbanka neins staðar í landinu. Lágmarks úttektargjald í þeim flestum er 250 baht (980 krónur) og það er í ofanálag við álag sem íslenski bankinn þinn bætir við. Það oft þetta 600 til 800 krónur. Hver einasta seðlaúttekt í hraðbanka í Tælandi kostar því hátt í tvö þúsund krónur í hreina viðbót við gjaldmiðilsálag og þá ekkert minnst á hraðbanka sem finnast á vinsælum stöðum sem taka enn hærri þóknun. Hraðbankar kosta formúgu.




