V ið skulum ekki blekkja okkur neitt. Ef ekki væru afar sterk íslensk tengsl við smábæinn Gimli í Manitóba í Kanada væri bærinn alls ekki á neinum kortum íslenskra ferðalanga. En það er hann svo sannarlega og bærinn heldur feykigott fjögurra daga partí í lok júlí sem þess virði er að taka þátt í.

Það er ekki víða sem Íslendingar geta tekið þátt í hátíð erlendis til heiðurs Íslendingum en það er hægt í Gimli.

Það er ekki víða sem Íslendingar geta tekið þátt í hátíð erlendis til heiðurs Íslendingum en það er hægt í Gimli.

Þar er að sjálfsögðu um að ræða Íslendingadaginn sem heimamenn hafa verið svo sniðugir að breyta í fleirtölu fyrir nokkru síðan og stendur nú íslensk hátíð þar yfir í þrjá daga yfirleitt í lok júlí eða byrjun ágúst.

Þó aðdráttaafl bæjarins samanstandi nánast eingöngu af fólki sem þar bjó eða býr og rekur ættir sínar heim til Íslands auk stöku minnisvarða og gamalla húsa vaknar þessi litli bær vel til lífsins yfir Íslendingadagana. Ekki aðeins eykst fjöldi Íslendinga í bænum heldur og líka Kanadamanna og jafnvel Bandaríkjamanna.

Þessa daga fara fram skrúðgöngur, ýmis konar samkeppnir á borð við sandkastalakeppni og keppni að víkingasið að ógleymdri hinni forvitnilegu „Brennivíns Rulapizza contest.“

Full dagskrá fyrir alla aldurshópa er í gangi alla dagana og sannarlega hægt að gera verri hluti en dvelja í Gimli þennan tíma. Alla dagskrá og staðsetningar má sjá á heimasíðu hátíðarinnar hér. Svo hægt að kynna sér bæinn aðeins betur hér.