Pistlar

Eyjan Maldivía

  28/04/2012No Comments

Ruglið ríður ekki við einteyming í sumum íslenskum miðlum. Ef marka má vefmiðilinn Pjattrófurnar er nú til eyja sem heitir Maldivía og þar er víst að finna fyrsta neðansjávarhótel heims.

Conrad Hilton Rangali hótelið er snilldin ein virðist vera af myndum. En það er ekki á eynni Maldivíu.

Ritstjórn Fararheill klóraði sér töluvert í hausnum eftir lestur greinar um „Stórkostlegt neðan sjávar hótel í Maldivíu“ sem birtist á vef pjattrófa fyrir skemmstu. Af lýsingum að dæma mætti halda að greinarhöfundur hafi dvalið þar sjálfur og bæði prófað „fullkomna“ heilsulind hótelsins og „fyrsta flokks“ matinn.

Ekki þar fyrir að Hilton Conrad hótelið sem um ræðir virðist af myndum vera æði stórkostlegt. Þar er bæði veitingastaður á fjögurra metra dýpi undir glerþaki og sömuleiðis eru tvö herbergi á því dýpi sem hægt er að leigja. Allt mjög spennandi jafnvel þó ein einasta nótt í allra ódýrasta herbergi kosti parið 180 þúsund krónur. Hvergi kemur fram á vef hótelsins hvað punga þarf út fyrir gistingu neðansjávar en líklega er það oggupons meira.

En það er engin eyja í heiminum sem heitir Maldivía og hótelið er alls ekki það fyrsta sem býður gistingu neðansjávar. Hótelið er á eynni Rangali sem er ein af um tvö þúsund eyjum alls í Maldive klasanum í Indlandshafinu. Neðansjávarhótel hafa verið til um tíu ára skeið meðal annars í Flórída og slík hótel finnast víðar á Maldive eyjum.

Lágmarks kurteisi við lesendur að hafa staðreyndirnar á hreinu!