„If you’re flying Icelandair: bring a sandwich and snacks for the long flight. They don’t give you anything, and the stuff they sell is much smaller than in the menu pictures.”
Hmmm! Skyldi vera að Icelandair sé að skera svo við nögl að matur um borð sé af skornari skammti en sjá má á myndum á vef flugfélagsins? Það er jú ekki eins og það sé toppdíll að fá skitna sneið af pizzu á 1.150 krónur…
Við viljum gjarnan heyra í þeim er hafa flogið síðustu dægri og vikur með Icelandair og pantað sér mat í mallakút. Enginn okkar hér hjá Fararheill nokkru sinni keypt stakan hlut í flugi með Icelandair og við því alls sendis ófær um að leggja mat á matinn eða kostnað við matinn.
Hver er þín reynsla? Er Icelandair að skera dapran mat við nögl? Endilega sendu okkur skeyti á fararheill@fararheill.is.







