S ennilega taka aðeins afar hjátrúarfullir einstaklingar eftir því en það er engin sætaröð 13 hjá nokkrum flugfélögum heims.

Þessa sætaröð er ekki að finna hjá allnokkrum flugfélögum heimsins

Þessa sætaröð er ekki að finna hjá allnokkrum flugfélögum heimsins

Það er raunin merkilega víða enda talan þrettán lítil happatala hjá mörgum einstaklingum og þá sérstaklega í vestrænum þjóðfélögum.

Til að mynda finnast engar sætaraðir með þetta númer í vélum flugfélaganna Lufthansa, Air France, Ryanair, Iberia, Air Tran og Continental. Heldur ekki hjá Alaska Airlines en það er reyndar ekki út af hjátrú.

Hjá öllum hinum var þessari sætaröð sérstaklega skipt út til að róa þá farþega sem hugsanlega taka því illa að hlamma sér niður í sætaröð 13.

En kannski sem betur fer hafa flugfélög ekki haft af þessu of miklar áhyggjur því meðan talan 13 þykir óheppileg í vestrænum þjóðfélögum eru margar aðrar tölur sem þykja boða ólukku annars staðar í heiminum. Talan átta boðar mikla ógæfu í Kína, Rússar eru lítt hrifnir af tölunni sex og einhverra hluta vegna þola Nýsjálendingar illa töluna þrjá.

Það væri töluvert á milli sætaraða ef elta ætti hjátrú allra á öllum tímum.