Fólk sem hugsar lítið eða ekkert er óhætt að kalla hálfvita. Það á sannarlega við um stjórnendur Keflavíkurflugvallar sem ættu að sjá sóma sinn í að segja störfum sínum lausum.

Rólegt um að litast í öryggisleitinni. En það er liðin tíð. Nú eru þar langar raðir allan sólarhringinn. Mynd A.Curry
Nýlokið er mikilli auglýsingaherferð Leifsstöðvar þar sem stöðin dásamaði sjálfa sig út í eitt og lofaði aldeilis frábærum nýjungum fyrir ferðalanga sem þar þurfa að bíða eftir flugi og dreymir um að versla. Flottari búðir, meira búðapláss og aldeilis málið að koma helst deginum áður en þú átt flug til að versla og upplifa karnival stemminguna í gjörbreyttri og bættri Leifsstöð.
Það er sem sagt búið að eyða hálfu ári til þess eins að breyta Leifsstöð fyrir verslunareigendur. Stækka verslanir og fjölga keðjuverslunum, með tilheyrandi raski og óþægindum fyrir ferðafólk.
Það er nú aldeilis fín forgangsröðun. Á sama tíma og herferð Leifsstöðvar var í gangi fóru fyrst að berast fregnir af alvarlegum töfum við innritun og öryggisleit. Svo er áfram, enda engar endurbætur á þeim hluta flugstöðvarinnar, og fólk má nú prísa sig heppið að hanga „bara“ rúma klukkustund í öryggisleitarröð á álagstímum. Fyrir utan náttúrlega um klukkustund í innritunarröð líka. Og allir vita að fátt er jafn indælt og hanga í röð. Það lýsir svo mikilli manngæsku og virðingu fyrir tíma fólks.
Gott og vel að græða á verslunarplássi í flugstöðvum. Leifsstöð þarf jú að borga milljóna laun forstjóra og hers aðstoðarmanna. Sama fólks og vill ekki sjá eldra fólk við störf í flugstöðinni. Sama fólks og hefur, sumt hvert, notfært sér ókeypis flugferðir og dúllerí gegnum sambönd gegnum tíðina og situr sem fastast og þykir allt hið eðlilegasta.
En hafa menn ekki aðeins gleymt sér í græðginni? Flugstöð er ekki verslunarmiðstöð. Ekki aðeins hafa borist fjölmargar kvartanir yfir löngum röðum og töfum við innritun og öryggisleit. Líka má lesa talsvert á samfélagsmiðlum um óánægju ferðafólks með dapra aðstöðu fyrir biðfarþega í Leifsstöð. Verslanir taka nú það mikið pláss að þeir sem eru bara að bíða og hafa engan áhuga að versla verða oft að gera sér að góðu að standa uppréttir í tíma og ótíma. Það jafnvel í tvær til þrjár stundir því flugvöllurinn hvetur fólk til að mæta með minnst þriggja stunda fyrirvara á álagstímum. Hvenær eru álagstímar? Alltaf.
Þetta heitir á frummálinu LÉLEG ÞJÓNUSTA. Og léleg þjónusta á stað þar sem fólk hefur ekki val um annað heitir MANNVONSKA.
Út með þetta lið takk. Við þurfum fólk sem hugsar um fólk í stjórnunarstöðum á eina alþjóða flugvelli landsins. Og náttúrulega fólk sem tímir að greiða nægilega góð laun til að fá gott fólk í öryggisleit. Samkvæmt nýlegri úttekt ESA er einfaldasti hlutur í heimi að taka sprengju með sér inn í Leifsstöð. Meðallaunin verða að vera hærri en 220 þúsund fyrir feita og leiðinlega vaktavinnu til að það gangi eftir. Það eru, nota bene, opinber lágmarkslaun í Hollandi.







