Skip to main content

Leiki forvitni á því hvaða fólk flugþjónum víða um veröld finnst allra þægilegast að hafa um borð þá eru það Evrópumenn á þrítugsaldri sem eru að ferðast einir síns liðs.

Þægilegustu farþegarnir í háloftunum að mati flugþjóna sjálfra er fólk sem ekkert þarf að hafa fyrir.

Það, að minnsta kosti, er niðurstaða könnunar meðal 700 flugþjóna hjá hinum ýmsu flugfélögum heimsins samkvæmt flugvefnum Skyscanner í Bretlandi.

Ekki þarf háa greindarvísitölu til að finna út hvers vegna þeir farþegar sérstaklega eru í uppáhaldi. Það fer ekkert fyrir þeim og slíkir einstaklingar þurfa í raun yfirleitt enga sérstaka þjónustu.

Það reynist sem sagt raunin samkvæmt þessu að flugþjónar vilja nú helst bara hafa það þægilegt í vinnunni og hafa sem minnst fyrir hlutunum. Jafnvel þó starfið sjálft fari seint í bækur sem sérstaklega flókið eða erfitt.