Skip to main content

Aldrei leiðinlegt þegar tiltölulega lítil fyrirtæki standast grimma samkeppni og gera jafnvel gott betur ár frá ári. Það virðist vera raunin hjá Dohop.

Dohop lengi verið meðal þeirra fremstu og nú skáka þeir jafnvel Google. Mynd Dohop

Flugleitarvélin Dohop er í grunninn jafn rammíslensk og soðin sviðakjammi og rófustappa. Fyrirtækið verið merkilega framarlega í flokki á afar grimmum samkeppnismarkaði frá upphafi þó við hér höfum annars lagið bent á miður góða hluti.

Nett tékk Fararheill þennan daginn bendir til að Dohop sé bara að bæta vindi í seglin þrátt fyrir að glíma við allra stærstu fyrirtæki heims. Þar eigum við sérstaklega við tæknirisann Google sem hefur um langt skeið haldið úti Google Flights sem leitar uppi hagstæðustu flugfargjöldin hingað og þangað um heiminn.

Google Flights var einmitt lengi vel fyrsta stopp snápanna hjá Fararheill.is þegar útför var á dagskrá en ekki lengur. Allra síst eftir tékk dagsins og sívaxandi ritskoðun og almenn leiðindi. Engin tilviljun að veigamesta mottói fyrirtækisins frá upphafi: Don´t be evil var hent fyrir róða fyrir tíu árum eða svo.

Þrjú eitt fyrir Dohop

Við könnuðum verð á flugi fram og aftur á tilteknum tímum til tiltekinna staða frá Keflavík fyrir tvo fullorðna næstu mánuði og leituðum á nákvæmlega sama andartaki að flugi hjá Dohop annars vegar og Google Flights hins vegar.

A) Beint flug fram og aftur frá KEF til Frankfurt í Þýskalandi 15. – 22. nóvember. Lægsta verð Dohop: 87.200 krónur. Lægsta verð sem Google Flights bauð lýðnum (á nákvæmlega sama flugi) reyndist kosta tvímenningana 98.900 krónur. Munur upp á 11.700 krónur.

B) Fram og aftur til Brussel með millilendingu 2. til 9. desember fyrir tvo. Lægsta verð Dohop: 49.800 krónur. Lægsta verð Google Flights sömu leiðina sömu daga alls 95.650 krónur. Munur upp á rúmar 45 þúsund krónur.

C) Flogið til Istanbúl frá KEF og heim aftur 8. til 22. janúar með millilendingu hjá báðum aðilum. Lægsta verð Dohop 83.000 og flugið út í heild 9 klukkustundir og 40 mínútur. Að þessu sinni virtist Google Flights rúlla þessu upp því lægsta verð reyndist vera 78.000. En í smáa letrinu kom fram að flugtíminn út var aðeins 19 klukkustundir og 55 mínútur. Eina flugið sem Google Flights fann nálægt flugtíma Dohop, 10 klukkustundir og 10 mínútur, reyndist kosta 145 þúsund krónur fyrir tvo.

D) Það í raun einungis í einu tilfelli; flug fram og aftur til Alicante frá Keflavík 10. til 19. febrúar með millilendingu sem Google tókst að máta Dohop í verði. Báðir aðilar fundu flugið fyrir tvo niður í 52 þúsund krónur og aðeins tæplega þriggja stunda bið milli flugferða. Þó ekki um sömu flugferðir að ræða.

Tökum fúslega hattinn ofan fyrir litla Dohop að eiga í fullu tré og gott betur við tæknirisann sem þénar meira á sekúndubroti en Dohop mun gera til eilífðar. #meirasvona