Yfirleitt auðvelt er að komast til Frakklands og þvælast um Bordeaux hérað villt og galið eða önnur þau vínræktarsvæði sem þekkt eru þarlendis.
Aðeins flóknara er að kynna sér hlutina hinu megin Atlantsála þar sem hinn frægi Napa dalur ber höfuð og herðar hvað bandaríska víngerð snertir. Það jafnvel þó stór hluti dalsins hafi brunnið upp til agna í skógareldum síðustu misseri og ár.
Til vesturstrandar Bandaríkjanna er aðeins komist héðan með Icelandair eins og sakir standa en þá stoppað langt frá Napa-dalnum ellegar gegnum tengiflug til Oakland eða San Francisco sem eru næstu borgir við Napa. Þaðan er klukkustundar akstur til Napa dalsins en langleiðina er einnig hægt að komast með lest eða bát.
Napa dalur er stór og mikill og töluverður hluti þeirra vína sem þar eru framleidd eru tæknilega séð alls ekki Napa vín heldur fer framleiðslan fram í nágrannahéruðum dalsins fræga. Stöðum á borð við St.Helena, Calistoga, American Canyon og Oakville sem þó falla allir undir Napa þegar kemur að víngerð.
Það er einmitt í Calistoga þar sem finnst víngerðin Chateau Montelena sem kannski er lítt þekkt nema meðal alhörðustu vínáhugamanna. Það var nefninlega vín frá þessari litlu víngerð sem umbylti vínheiminum árið 1976 þegar háttvirtir franskir vínsælkerar mátu það vín betra en bestu frönsku vínin á þeim tíma. Fram að því hafði verið hlegið að Bandaríkjamönnum og vínum þeirra en sá hlátur hefur ekki látið á sér bera aftur.
Víngerðina er hægt að heimsækja, skoða og vitaskuld smakka á uppskerunni og það er raunin með yfir 90 prósent af víngerðum í og við Napa. Fjölmargir aðilar bjóða skemmri eða lengri vínferðir um héraðið og smökkun innifalin í langflestum tilvikum. Einn dagur eða svo nægir til að kitla bragðlaukana en til að njóta í tætlur er óvitlaust að planta rassi hér lengur en það.
Fyrir áhugasama um víngerð í Napa og hið fræga andartak þegar vín frá Kaliforníu komust á blað í einu vetfangi er vert að sjá kvikmyndina Bottle Shock frá árinu 2008. Sú er tekin að stórum hluta í Napa dalnum og í Montelena víngerðinni og lýsir á raunsæjan hátt hvernig það kom til að vín frá Napa urðu heimsfræg.
View Napa dalur og víngerðirnar in a larger map





