Leifsstöð er ennþá okurbúlla. Almennt verðlag í flugstöðinni flokkast sem „fokdýrt“ samkvæmt meirihluta þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Fararheill.

Forstjóri Isavía sem telur ekkert að því að grípa ókeypis ferðir frá hagsmunaaðilum og telur ekkert að því að selja ferðafólki skitnar samlokur á þúsundkall. Enda með afar góð laun sjálfur. Mynd Isavía

Forstjóri Isavía sem telur ekkert að því að grípa ókeypis ferðir frá hagsmunaaðilum og telur ekkert að því að selja ferðafólki skitnar samlokur á þúsundkall. Enda með afar góð laun sjálfur. Mynd Isavía

Við hentum út þeirri spurningu til lesenda vorra fyrir tæpum tveimur vikum hvað þeim finndist almennt um verðlag í nýrri og endurbættri Leifsstöð. Sömu Leifsstöð og hefur eytt hundruð þúsunda í auglýsingar um eigin dásemdir auk tugmilljóna af almannafé í endurbætur til handa verslunum og þjónustuaðilum. Á kostnað þæginda fyrir farþega sem engan áhuga hafa á verslun.

Niðurstaðan er nokkuð rússnesk eða kínversk þar sem niðurstaðan er yfirgnæfandi. 73% þátttakenda segja allt hér fokdýrt, 20 prósent segja verðlag nokkuð í meðallagi og sjö prósent telja að vörur í Leifsstöð séu í ódýrari kantinum.

Forráðamenn Isavía, sem fer með stjórn mála í Leifsstöð og ákveður allt þar innandyra með tiltölulega stalinískum aðferðum geta þó verið glaðir yfir einu. Færri telja Leifsstöð okurbúllu nú en árið 2011 þegar við framkvæmdum sams konar könnun. Tveimur prósentustigum færri nánar tiltekið. Kannski tilefni til að hækka laun stjórnar og helstu forráðamanna annað árið í röð um tæpar tíu milljónir króna.

* Atkvæði greiddu 386 aðilar. Ekki er um vísindalega könnun að ræða heldur meira til gamans gert. Þökkum þátttökuna.