Pistlar

Blekkingar eða eðlileg viðmið?

  09/01/2013No Comments

Vísitölufjölskylduverðlagning! Þetta er langt orð yfir þá hefð íslenskra ferðaskrifstofa að miða oftast nær lægstu auglýstu verð sín við fjögurra manna fjölskyldu og þar af séu tvö börn undir tólf ára aldri.

Ferðaskrifstofur hér á landi lifa í þeim draumaheimi að íslensk meðalfjölskylda séu tveir fullorðnir og tvö börn og miðar allra ódýrustu verð sín miðað við þá fjölskyldustærð. Fararheill vill meina að tími sé til kominn að vakna til raunveruleikans

Að mati ritstjórnar Fararheill.is er þetta ekki aðeins blekkjandi heldur beinlínis mismunun. Hafa velflestar erlendar og eðlilegar ferðaskrifstofur löngu hætt slíku bulli og miða auglýst verð sín við tvo einstaklinga.

Hvers vegna blekkjandi?

Vegna þess að þeir sem ekki eiga heila vísitölufjölskyldu á réttum aldri þurfa jafnan að greiða mun hærra verð fyrir ferðir sínar en auglýst verð sem jú miðast oftast nær við tvo einstaklinga og tvö börn.

Hvers vegna mismunun?

Vegna þess að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands eru aðeins rúmlega 13 þúsund skráðar fjölskyldur á Íslandi með tvö börn. Það gerir samtals tæplega 53 þúsund manns og í þeim tölum eru hjón eða sambúðarfólk með börn upp að 18 ára aldri.

Meira að segja það dugar ekki til því hámarksaldur „barns“ hjá sumum ferðaskrifstofum er tólf ára og eftir það gildir fullorðnisgjald. Gera má ráð fyrir að heildarfjöldi fjölskyldna með tvö börn undir tólf ára aldrei sé vart meiri en tíu þúsund talsins. Sem þýðir að tilboðin ná til 40 þúsund Íslendinga af 320 þúsund samtals.

Auglýst verð með slíkum hætti er farið að taka mið af minnihlutahópi í landinu. Ekki svo að skilja að nokkur íslensk eftirlitsstofnun sé að fara að banka upp á vegna þessa en einhvers staðar í veröldinni væru gerðar alvarlegar athugasemdir við að fyrirtæki auglýsti öll verð eingöngu miðuð við minnihlutahóp í landinu.