Tíðindi

Aldrei fleiri ferðamenn til New York

  11/01/2011nóvember 21st, 2014No Comments

Það er opinbert. Árið 2010 var metár í fjölda ferðamanna sem sóttu heim New York í Bandaríkjunum og kemur þessi staðreynd nokkuð á óvart enda borgin í dýrari kantinum og lægð eða kreppa ríkti um víða veröld á liðnu ári.

Engu að síður staðreynd en borgina heimsóttu 48,7 milljónir ferðamanna á liðnu ári eða því sem næst allir íbúar Spánar. Er um risaaukningu að ræða því árið 2009 náði heildarfjöldi ferðalanga á þeim bænum rétt í 41 milljón.

Áætla ferðamálayfirvöld í borginni að þessir 48,7 milljónir gesta hafi eytt sem nemur 30 billjónum dollara í verslunum og veitingastöðum á árinu. Geri aðrir betur.