M argur er knár þótt hann sé smár segir gamalt máltæki. Það má sannarlega til sanns vegar færa varðandi eitt lítið lúxushótel í Albufeira í Algarve í Portúgal.

Eitt mest verðlaunaðasta hótel heims er þetta litla hótel í Albufeira. Mynd Vila Joya
Vila Joya heitir það og er lítið og vinalegt fimm stjörnu hótel með sína eigin klettóttu strönd við Praia de Gale og útsýni vel til hafs. Fyrsta flokks heilsulind og ekki eru nema örfá skref á topp golfvöll.
Það vissulega allt fínt og flott en fjarri því eina hótelið sem það býður á Algarve. Hvers vegna erum við þá að mæla með dvöl hér?
Það atvikast þannig að þetta litla hótel er eitt af innan við fimm hótelum í Evrópu allri sem fengið hefur sautján gullverðlaun á World Travel Awards ferðaverðlaunahátíðinni. Reyndar átján gullverðlaun í heildina því nýlega fékk veitingastaður hótelsins einnig gull sem besti hótel-veitingastaður heims. Það í ofanálag við að hafa tvær stjörnur hjá Michelin og hafa einnig verið valinn einn af 50 bestu veitingastöðum heims í nýlegu vali Food Critic. Ekki lítill árangur það.
Í þokkabót hefur Fararheill snætt hér eina kvöldstund og það er ekki bara fyrirtaks maturinn sem hér gleður hjartað heldur og að veitingastaðurinn er opinn út í garð á heitustu dögum og ljúfur andvari frá sjó er aldeilis fyrirtak við þær aðstæður.
Óhætt að mæla með stoppi hvort sem fólk prófar eina nótt eða fleiri eða lætur nægja að fá sér kvöldverð. Vænlegt þó að bóka með fyrirvara því hér er setið um fá borðin. Svo auðvitað taka pening úr hraðbankanum. Hér eru herbergi ekki á klinkverði eins og sést á hótelbókunarvél Fararheill hér að neðan. Heimasíðan.




