Ý msir velta fyrir sér þeim áberandi hvítu rákum sem þotur skilja eftir sig á flugi og telja sumir það hreint og beint vera útblástur og um leið mengun frá hreyflum vélanna. Svo er þó ekki.

Flugslóðar geta aldeilis sett svip á himininn á vinsælum flugleiðum. Mynd Ahmed Kapoor

Flugslóðar geta aldeilis sett svip á himininn á vinsælum flugleiðum. Mynd Ahmed Kapoor

Um þetta má fræðast mætavel á vef Veðurstofu Íslands þar sem fjallað er um þetta fyrirbrigði sem á fræðimáli kallast kotra.

Kotra er fjarri því að vera mengun eins og margur heldur. Þetta eru ísský sem myndast þegar heitur og rakur útblástur blandast við umliggjandi ískalt loft. Úr verður mettuð loftblanda.Skiptir öllu máli í þessu samhengi hvort loftblandan sem um ræðir mettist af vatnsgufu eða ekki.

Segja má þannig að á mannamáli eru þotuskýin aðeins ský úr ískristöllum sem þéttast saman í eina heild enda hitastig í þotuhæð alla jafna langt undir frostmarki.

Vindhraði á hverjum stað fyrir sig ræður svo hversu lengi flugský haldast en það er afar misjafnt. Geta þau enst í nokkrar mínútur og upp í nokkrar klukkustundir séu vindur lítill eða enginn.