Þá er það komið á hreint. Hartnær helmingur allra flugfarþega viðurkenna að hafa flörtað við ókunnuga um borð í farþegaþotum.
Þessu svara 45 prósent játandi í nýlegri könnun meðal rúmlega þúsund farþega í millilandaflugi.
Í reynd þurfti varla könnun til að komast að þessu því aðrar eldri kannanir hafa sýnt gegnum tíðina að stór fjöldi flugfarþega dreymir um að komast í svokallaðan háloftahóp, Mile High Club, en það geta þeir einir kallað sig sem hafa stundað kynlíf um borð meðan á flugi stendur. 95 prósent flugfarþega láta sig dreyma um að komast í þennan hóp.
Vefmiðilinn Skyscanner lagði þá spurningu fyrir rúmlega eitt þúsund farþega hvort þeir flörtuðu meðan á flugi stóð og það viðurkenndu 45 prósent umsvifalaust. Lítill hluti þeirra viðurkenndi að flörtið um borð hefði endað með kynlífi á klósettinu áður en lent var.
Þriðjungur þeirra sem flörtað hafði í flugi viðurkenndi einnig að það hefði endað með stefnumóti að flugi loknu og heil átta prósent aðspurðra sögðu flörtið um borð hafa leitt til sambands í kjölfarið.
Kannski eitthvað til umhugsunar fyrir þá makalausu sem dreymir um annað 😉








