Einungis fimmtán prósent breska ferðamanna nýta sér nú þjónustu þarlendra ferðaskrifstofa við leit að heppilegri ferð eða sumarleyfi. 67 prósent hins vegar gera sínar eigin rannsóknir og áætlanir með hjálp netsins.
Kemur þetta fram í stórri könnun breska veffyrirtækisins YouGov og Memonic og sýnir svo ekki verður um villst að heimur ferðaþjónustuaðila hefur gjörbreyst.
Þó ávallt sé varasamt að draga ályktanir má slá föstu að einhver slík þróun hafi einnig átt sér stað hérlendis.






