Fjölgað hefur verulega þeim kvörtunum sem Flugmálastjórn hefur fengið á sitt borð hérlendis frá farþegum milli ára. Allt árið í fyrra komu aðeins 20 kvartanir á þeirra borð vegna íslenskra flugrekenda og Iceland Express en nú þó árið sé ekki alveg liðið er fjöldi kvartana 123 talsins.
Samkvæmt svari stofnunarinnar við fyrirspurn Fararheill.is eru Íslendingar almennt að vakna til lífsins um að tafir og seinkanir eiga ekki að líðast. Hafa alls 85 kvartanir vegna þess komið frá flugfarþegum fram til desember. Þá hafa 19 einstaklingar kvartað vegna afgreiðslu flugfélaganna vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli í vor en það er mun færri en búast mætti við.
Þá hefur sex einstaklingum verið meinað að fara í flug við brottför en þrátt fyrir umleitan Fararheill.is hefur engin skýring fengist á því hvers vegna það er. Þá eru 13 kvartanir vegna annars eins og það er flokkað hjá Flugmálastjórn.
Ekki hafa fengist upplýsingar um upphæðir skaðabóta sem farið er fram á né heldur hvernig kvartanirnar skiptast milli flugfélaga.






